Bergulufsan

sæl nú

04.02.2007 20:38:00 / berga8

Húsið á sléttunni

Jæja nú er allt að gerast hjá okkur hjónos, var að setja inn myndir af setrinu mikla sem við erum að fara flytja í mars.  Birki var boðin ný vinna, vallarstjórn á golfvelli í Kiðjabergi.  Flottasti völlur landsins!!  Þetta er frábær tími þar sem styttist í komu baunarinnar, þar getum við verið í sæluvímu í sveitinni í ferska loftinu og geggjuðu umhverfi.  Ekki slæmt.  Þó að Bogahlíðin sé búin að hlýja okkur í 6 ár þá er hún orðin þreytt og er ekki alveg nógu barnvæn.  Mar er búin að ganga í gegnum margt hérna, klikk nágrannar, dópistar, drykkjudýr, partýlið, fólk með skuldahala á eftir sér ofl góðir hálsar eru búnir að koma og fara síðan ég flutti hingað.  Aumingja Gulli Briem sem gerði þau mistök að kaupa sér í kjallaranum, greyið vissi ekki að hér væru nánast bara leiguíbúðir með fyrrnefndum skríl.

Lellukotstímabilið var náttl kreisí en nauðsynlegt tímabil sem ég og Dröfn tókum.  OOHH Dröfn ég vildi ég gæti sett inn nokkrar myndir af okkur á góðum stundum, í tilefni þess að Bogahlíð verður brátt kvödd.

Smá upprifjun frá Lellukoti:

Diskóljósin ógurlegu

Brjáluðu græjurnar

Stropljósið í glugganum (til að vísa gestum í partý)

Filtteppið góða og þrifin á því

Fjöldamörg góð partý mikið gaman mikið grín

Aumingja nágrannarnir

Löggan sem átti heima á móti en gott að konan hans er  hjúkka, því ef það hefði komið til átaka í  partýunum, þá gæti löggan ekki verið fljótari á staðinn og hjúkkan mætt med den sammen að hlúa að hinum særðu.  En sem betur fer kom aldrei til átaka í Lellukoti, því þar var gleðin ein.

Bruggverksmiðjan ógurlega

Kósýkvöld að hlusta á Enyu, spjall og slökun á sófanum

Svartfuglaveisla

Endilega rifjið upp með mér atvik, þetta er helsta sem ég man í bili.

Birkir minn flutti fljótt inn í Lellukotið eftir að við kynntumst, þó honum hafi fundist við frekar skrítnar í byrjun.  Brjálaðar partýgellur með heimabrugg í einni og neftóbak í hinni.  Dröfn mín flutti úr Lellukoti sennil vorið 2002 og þar með féll titillinn niður og hefur síðan bara verið Bogahlíð 11, 4 hæð til vinstri.  Síðan hefur verið tiltölulega rólegt hér, frekar rólegt. En við Birkir höfum plummað okkur mjög vel saman hér þó gamla geit hafi oft tuðað mikið yfir ,,góðum,, grönnum og öðru þá verður pínu skrítið að fara héðan.

Nýtt og spennandi tímabil að fara hefjast hjá okkur kornum.

 

 

 

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 02:56:04 / berga8

Jóla jóla jól eta eta et heyri fitufrumurnar stækka

Halló halló gömlu mýs, herfan er bara svona líka spræk er búin að vera í jólafríi síðan 15.des vúhú.  Er enn á Djúpa búið að vera æðislegt.  Jóhannes Bjarki kom með okkur og var í 1 viku í sveitnni.  Við gistum 1 nótt hjá langömmu Grænu, það var að sjálfsögðu vaknað eldsnemma til að fara í fjós.  Mjólka kýrnar og kíkja á rollurnar og kálfana síðan farið í hænsabúið raða eggjum í bakka, þvílík stemmning.  Þar á eftir er að sjálfsögðu heitur hafragrautur og meðþví sem amma er búin að vera mauka allann morguninn, yndislegt alveg.  Síðan tókum við rúnt með ömmu inn á Höfn í búðarferð og jólaseríurúnt.  Á Djúpa fórum við með ömmu og afa í Hrauni labbitúr út á sansdanna flottu, laufabrauðsgerð á ammælisdaginn minn og fullt af kökum sem elsku mamma var búin að vera baka handa mér.  Nammi namm.  Mamma er búin að vera elda geggjaðan mat handa os. 

Við kíktum með Jóhannes á Borgó til ömmu og afa þar var farið í fjöruferð, fjárhúsaferð, leika í Gullabúinu við lækinn á Framnesi, stór rúntur um sveitirnar með ömmu.  Jóhannes spilaði bæði við(eða með) ömmu og svo afa.  Amma sæta kenndi Jóhannesi að föndra með steina úr fjörunni, svaka listaverk þar á ferð.  Við hjónin heimsóttum Bjössa og Björgu um kvöldið meðan litli kall var sallí rólegur á Framnesi vildi bara vera þar, Bjössi frændi var reyndar á slökkviliðsæfingu.   

Daginn eftir fórum við aftur í Egilsstaði og kíktum aðeins á ættingjana þar, gistum hjá Höllu minni og Einari á Fáskrúðsfirði 1 nótt.

Brjálað ferðalag á manni alltaf,  á morgun förum við líklega aftur upp í Egilsstaði í afmæli til Eyjólfs frænda en hann verður 50 ára gamli skarfurinn.  Við gömlu förum svo kannski norður og verðum þar yfir áramótin en það er ekki alveg niðurneglt. 

 

 



Gleðileg jól lömbin mín öll, til sjávar og sveita.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 11:09:29 / berga8

Ferskleiki

Það eru komnar inn júlí myndir jei, annars er ég mjög fersk.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 22:28:04 / berga8

HM og aftur HM

Ég öfunda konur sem hafa gaman af því að horfa á HM með köllunum sínum.  Þó mér þætti það gaman þá myndi ég ekki njóta þess því ekki hverfur uppvaskið að sjálfu sér.  Þetta er ekki beint til Birkis sérstaklega.  Ég er ekki enn orðin bitur kelling en það styttist í það.  Af þessu tilefni bjó ég til þessa bíómynd.

Hver kannast ekki við þetta

http://www.grapheine.com/bombaytv/play_uk.php?id=1403648


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 13:32:07 / berga8

Hej allehubba

Hi dullurnar minar, gamla er stodugt a roli med Palma og Mai. I dag forum vid ut a eyjuna kol gohl (eda e-h tannig leidretti tetta seinna), tokum bat fra Pattaya kostadi heilar 40 kronur isl adra leidina. Tvilikt falleg eyja, hvitasti sandur sem eg hef augum litid og mjog hreinn sjor. Eg lenti i teirri oskemmtilegri reynslu ad vera spurd af strak a eyjunni hvort eg vaeri fra Englandi. Eg hrissti hausinn verulega og sagdi honum ad tetta vaeri mjog mikid turn off fyrir evropskar stelpur, hann skildi aldrei segja tetta vid kvenfolk fra Evropu. Hann hlo og skildi nattl ekkert hvad eg var ad tala um. Tetta er i annad skipti sem eg lendi i tessu og er nu mjog modgud. Eg leidretti tennan misskilning i tetta skiptid og sagdi honum af hverju eg vaeri storlega modgud. Sraksgreyid var midur sin og reyndi hvad hann gat til ad baeta fyrir tetta, elti mig um allt og sagdi ad eg vaeri otrulega fogur manneskja. Eg puffadi bara a hann. Greyid hann gerir tetta ekki aftur. Anyways. Eg og Mai forum a Jetski og tad var mitt fyrsta skipti djo geggt gaman (eins og hann afi minn segir) va hvad eg skemmti mer vel. Svo soludum vid okkur adeins a strondinni. Eftir tad forum vid um alla eyjunna a scooter, Palmi og Mai a einni og eg alein. Tau segja ad eg hafi stadid mig eins og hetju midad vid fyrsta skipti. Djo gaman, forum utum allt. Eftir tad forum vid nidra hofn tvi vid vorum ad missa af seinasta batnum i land aftur, en Mai stoppadi a leidinni a hofnina til ad syna okkur Poddumarkad. Ja litlir froskar, engisprettur, ormar, meiri poddur og storar flugur eda e-h sem eru sidan djupsteiktar og ETNAR. Nammi namm hun keypti ser einn skammt tvi hun er von ymsu ur sveitinni i NA-Thailandi tar sem hun olst upp. Min reyndi heidarlega tilraun ad smakka a tessu lostaeti en guggnadi a seinustu stundu. Vid kiktum a djammid a tridjudaginn i fyrsta skiptid, forum a gedveikan skemmtistad, eg er enn i losti yfir hljomsveitinni. Live hljomsveit med RB tonlist, allt tad nyjasta og gamalt og gott med'i. Tad skipti engu mali hvort tau toku lag med Aliciu Keys, Eminem, Black Eyed Peas tau voru otrulega god og i fyrstu tegar eg kom inn a svaedid helt eg ad tad vaeri Dj ad spila en nei. Dansadi af mer rassinn, enda ekki erfitt tvi hann hefur staekkad gifurlega hratt her uti. Skil tetta ekki. ;) Er buin ad kaupa mer helvitis helling af skom og gallabuxum enda kostar tad kuk og kanil. Diesel buxur kosta t.d. 1500 kjell isl ef mar hefur 'ahuga a Diesel. Keypti 3 por af kom a 1200 kjell isl um daginn. Puff puff. Kaupa kaupa. Jaeja kruttmundurnar minar kved ad sinni tarf ad vakna snemma a morgunn tvi vid forum a adra eyju a morgunn. Vubbi

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 11:16:04 / berga8

Myndir og Nudd

Hi ho nokkrar nyjar myndir I dag. Medmaeli dagsins er: EKKI FARA I NUDD MED SOLBRUNNA HUD. Min skellti ser I FOTANUDD I gaer hugsadi med mer ad tad vaeri helv vont ad fara I nudd med brunnu axlirnar minar frat vi I gaer. Svo min for inn a nuddstofuna og gomul saet krumpa byrjadi ad nudda mig, nema eg er svo helv kitlin undir iljunum ad kella var I lifshaettu tarna inni. Eg sparkadi og sparkadi ut I lofted alveg eins og fifl, reyndi ad afsaka mig a ensku en skilningur var takmarkadur. Svo kunni eg ekki vid ad segja henni ad haetta, eg hugsadi med mer, bara 55 minutur eftir. Ja 1 klst I fotanudd kostar adeins 400 kjell isl. Loksins er nuddstund lokid og eg er adframkomin vegan hlaturskasts I 1 kls, nei viti menn ta allt I einu bidur kellingin mer ad setjast upp og a e-h stol fyrir framan sig. Eg skildi ekkert og settist, helt kannski ad tetta vaeri partur af slokunarprogrammet, ekki ma nu standa snogglega upp eftir svona nudd og rjuka af stad. Nei andskotinn fer gamla setur handklaedi a axlirnar a mer og byrjar ad trysta a taer. NUDDA NUDDA OG NUDDA. A brunasvaedid eingongu, shit hvad tad var vont, min byrjadi ad stynja og stynja en nei hun ytti bara fastar. Abyggilega haldid ad tad tyrfti nu ad taka vel a tessari hvitu sem kemur ur miklum stressheimi. Ta fylgir semsagt alltaf orlitid herdanudd med, hvort sem tad er fotanudd eda e-h and. Daudi daudi. Mer leid reyndar mjog vel a eftir I fotunum, en herdarnar voru asskoti aumar tad sem eftir var tennan dag. Kvedja fra Thai

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 15:21:50 / berga8

Bj'utiful kontr'y

Hi hi allir, gamla hefur tad otrulega gott. Eg hef her med sett personulegt met i bitlausri ferd, og flugurnar her eru tho taldar mjog aestar i folk eins og mig. Ekkert bit enn 7-9-13. Forum i Tiger Zoo i dag puff geggjad gaman, sidan kiktum vid a landid sem Palmi keypti og tar er allt ad gerast. Tvilikt flott svaedi sem er i mikilli uppbyggingu, verkamennirnir fyrirtaekisins theirra kauda bua tarna a svaedinu i kofum med eldabusku og alles, tetta er mjog algengt. Teir eru farandverkamenn og pakka saman husunum sinum tegar teir flytja sig um set eftir vinnu. Set inn myndir kannski naest er gamla krumpa fer a netid. A hverjum degi forum vid ad skoda e-h nytt og nytt. Brjalada nuddid sem eg for i um daginn kostadi kuk og piss- Heilnudd i 1,5 klst kostadi 1500 kall i fina heilsuspa-inu sem vid forum a en svo geturdu fundid helmingi odyrara ut um allar gotur. V'i'i'i'i. A sunnudaginn forum vid a einhverja eyjuna her vid Pattaya, meget spennandi. Svo erum vid Palmi ad spa i ad fara ad synda med hofrungum i naestu viku. Svo thad er allt ad gerast her. Jaeja gamla er ad fara i hattinn eda bara drekka bjor kannski veit ekki. hihihihihi Ciao Bellas. Linda min ef tu ert ad lesa tetta ekki orvaenta eg er kominn med kassaplan sem verdur sett a plaggirnar er krumpa kemur til landsins min var ad hugsa um tetta i alla nott. Endilega kikka a myndasidu Arnyjar v'uh'u

http://arnyandresar.myphotoalbum.com/


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 09:52:26 / berga8

Myndir fra Pattaya

Ef tu googlar Pattaya ta er tetta mjog algeng sjon

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 09:32:54 / berga8

Bankok-Pattya

Hi hi alle sammen, min er kominn til Pattya vubbi. Ferdalagid gekk mjog vel, 11 tima flug fra Danmorku til Bankok. Svaka jumbo thota a 2 haedum, rosa finn matur um bord og friir drykkir alla leidina. Min var nu samt bara donnud og var bara I vatninu . It’s the truth and nothing but the truth. Frabaer thonusta um bord, eina sem eg get sett ut a var ad eg lenti med ungu pari sem var slummandi alla leidina, sem vard til thess ad eg saknadi Birkis mins. Tad vaeri nu ekki leidinlegt ad hafa rusinupunginn minn herna hja mer. Palmi og Mai saetu saetu toku a moti mer a flugvellinum I Bankok. Og foru med mig a hotel sem tau voru buin ad boka mig a 1 nottina. Romance in. I Bankok forum vid I nokkur mall en min var svo threytt thannig ad thad var litid um kaupaedi thann daginn. Forum I geggjad fiskasafn krutti putt. Saetu skotuhjuin eru sko aldeilis ad dekra vid mig. Tad er stif dagskra hja okkur, I dag forum vid a rosa flottan veitingastad-skip sem er med ladyboy-show. Svo verdur ferdinni heitid I healt spa- va hvad eg hlakka til. Thad er rosaflott, og kostar ekki neitt. Sidan aetlum vid ad fara skoda husin sem Palmi er ad byggja her. Fyrir ta sem ekki vita hvad ladyboy er, stelpustrakar, klaedskiptingar, thad er sko allt morandi af theim her. Mer finnst ekki skritid ad margir karlmenn ruglist a theim og alvoru kvennmonnum thvi teir eru margir hverjir rosalega kvennlegir I vextinum, fingerdir og flottir. Vid roltum adalgongugotuna her I Pattaya I gaerkvoldi og tad var rosalega skritid mar. Fullt fullt af ladyboy, rosalega ungar stelpur dansandi fyrir utan alla barina ad reyna hukka inn gesti I snipsidum pilsum og stuttum toppum. Eg daudvorkenndi teim, sumar litu ut fyrir ad vera 14 15 ara. Flestir skemmtistadirnir heita sex- eitthvad, eda girls- e-h. Ad visu er mjog erfitt ad segja til um aldur a Thailenskum konum thvi thaer eru flestar litlar og fingerdar. Thaer eru rosalega fallegar konur. Annars er allt gott ad fretta af poddumalum, ekkert bit ennta, reyndar fann eg flugnabu a svolunum hja mer I gaerkvoldi sem leyddi til sma hraedslukasts. Og litli saeti hvolpurinn sem Palmi og Mai bjorgudu I Bankok var med fullt af blodsugum a ser, og eg hafdi verid ad snerta hann. En tau voru buin ad thrifa hann I druslur og slita poddurnar af honum. Ef thaer komast inn I eyrun a folki ta er mar daudur. Thaer fjolga ser tar ‘a fullu. Oojojojojoj. Tad fannst ein a Perlu dottur hennar Mai I gaer to thad vaeri buid ad thrifa hann. Eg var med ostjornanlega klada tar til eg for ad sofa I gaer. Tad er yndislegt ad vera her og Palmi og Mai dekra svoleidis vid mig og vilja fara med mig hvert sem er, aedisleg. ‘Eg set inn myndir af svadalegu tjutti I danmorku sienna og tivolii ferdinni ogurlegu se min vard farveik I, kemur a ovart.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 10:05:58 / berga8

Ligeglad í Köben

Gamla situr nú að snæðingi með Valdísi krumpu, éta grjóthörð rundstykker í morgunnmat en stemmningin er gífurlega góð. Gisti fyrstu 2 nætur hjá Regínu minni í litlu sætu holunni þeirra.  Ógurlega kósý stemmning, tókum vel á dekurkvöldi, hvítvín, lit og plokk, maskar og svo mætti lengi telja áfram.  Erum ótrúlega fagrar eftir þessar mediferðir.  Fór og hitti Krillu krútt og Valdísi mús í gærmorgunn og við snússurnar krulluðumst allann daginn, éta éta, spjalla spjalla, gaman gaman. Berga verslaði sér smá,ekki mikið samt. Kíktum heim til Krillu og hittum Sílu og Júlla, elskurnar lánuðu mér síðan hjól þannig að ég gæti nú verið með í menningunni.  Mín var soldið nördaleg á hjólinu, ekki vön að hafa fótbremsu og svona hátt stýri.  Stóð mig ágætlega en var frekar hættuleg öðrum hjólamönnum.  Við Valdís hjóluðum svo heim til hennar í æðis sæta íbúð.  Ótrúlega kósý, sturta inni í svefnherberginu og ponkulítið klósett.  Krumpurnar spjölluðu svo saman fram eftir og kúrðum svo saman yfir Simpsons.  Klikkar ekki.  

Dýrka hvað Danir eru ligeglad, nægjusamir, rólegir, þægilegir.  Þvílíkur munur á löndum hvað þetta varðar.  Íslendingar eru klikkaðir á eyðslu og eignum á dauðum hlutum sem skipta ekki máli.  Samgöngurnar eru svo ógeðs sniðugar hérna að ég á ekki til orð, hvað er málið með Ísland, maður spyr sig.  Já ég væri sko til í að búa hér. 

Helst í fréttum er annars að ég skellti mér á miða til Thailands í gær, brottför á laugardaginn næsta.  Vúhú.  Mar þarf nú jafnvel að fara undirbúa sig undir flugnastríðið.

Kveð að sinni

 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 08:47:30 / berga8

Die Barbie

Hver man ekki eftir Barbie-laginu ógurlega með aqua sem var gjörsamlega búið að gera mann brjálaðann.  Árný systir spilaði þetta grimmt þegar hún var lítil og allt í botni og á repeat dögum saman  Púff........... Og enn heyrir mar þetta lag hljóma reglulega, hjá ungum stúlkukindum sem eru að uppgötva þetta líka skemmtilega lag 8|.  Anyways, hér er lagið með íslenskri þýðingu. Það er ágætt að söngla með í hausnum á sér, til að fá réttu stemmninguna.

Ég er barbie mær,

frá toppi oní tær,

kann að bussla,

ég er algjör drusla,

hárið mitt er ljóst,

með sílikon í brjóst,

engar brækur,

kond'og vertu sprækur,

heyrðu feiti kodd'í teiti,

ahahah yeee,

nú er fjör á næsta leiti

úah ú, úah ú!!!

ÉG er sæt,

ÉG er mjó,

ÉG er voðalega sljó,

ÉG á bíl,

ÉG á stíl,

ÉG ER MODEL!!!!!!!!!!!!!

Mér finnst alltaf gaman að spá í hlutföllin á lufsunni, ógeðs langar tannstönglalappir og pínulítill búkur með risabrjóst og innfelldan maga.  Við skulum ekki gleyma að kona með þessi hlutföll væri getulaus, hún færi ekki á blæðingar, hún væri að kurlast upp af næringarskorti þannig að hárið á henni gæti ekki verið svona þykkt og fallegt.  Hún ætti í raun að vera með kryppu á bakinu vegna álags á hrygginn að bera þessi ósköp framan á sér.  Fyrir utan allt þá getur hún sett síldartunnu á milli lappanna og samt náð hælunum saman.  Fötin sem fylgja henni eru svo þröng að mar var heillengi að koma henni í þau og mamma setti alltaf hveiti í stígvélin hennar svo það væri hægt að klæða hana í þau.  Uss suss

Hey ein pæling í viðbót, við stelpurnar erum stundum að pæla í því af hverju við séum alltaf að vaxa og raka hina ýmsu staði og þá aðallega George of the jungle svæðið.  Því ekki erum við að gera það fyrir strákanna þeim virðist vera þokkalega sama um þetta allt saman.  Ég held að það sé innprentað í okkur barbie-kynslóðina miklu meira en við teljum.  Af hverju er Barbie með risa brjóst (þar af leiðandi löngu komin yfir kynþroskaskeiðið ) en ekki pjölluhár, eða undirhandahár osfrv. 

Við skulum hafa það á hreinu að ég er ekki bitur vegna óæskilegrar fitu eða líkamshára hér og þar á mínum líkama.

 

Áhugaverðar síður

 

 

 

 

Kveðja Berga Thai

http://www.antibarbie.com/antiabout.html

 http://members.tripod.com/~toods/antibarbie.html


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 08:10:41 / berga8

Jæja nú styttist í ferðalagið

Gamla er orðin nokkuð spennt.  Bólusetningar-visakort-sjúkratrygging- allt að verða klárt fyrir ferðina.  Hlakka svo til að hitta liðið mitt í Danmörku, djö verður það næs.  Ætla lufsast með stöllunum mínum, Regínu, Krillu og Valdísi á kaffihúsum og kannski kaupa smá----ekki mikið samt. Mar verður að spara fyrir Thailandið.  Það verður klikkað, ætla fljúga til Bangkok og þaðan fer ég til Pataya til Pálma frænda. Síðan er ég að spá í að fara til Ingu Bjarkar til Krítar eða Brynju sem er á Tenerife.  Fer eftir fjárhag.

Djö eru bólusetningar dýrar, er búin að borga 15 þúsund og það er allavega ein sprauta eftir shit. Handleggurinn minn var ónýtur í heila viku eftir eina sprautun, shit bólgan sást langar leiðir í gegnum fötin. Og ég var hálf-fötluð í 4 daga í vinnunni. Það sem mar leggur á sig. Hjúkrunarkonan vildi að ég myndi hitta lækninn eftir að ég sagði henni flugusögurnar mínar síðustu ferðalög. Sjúkrahúsferðirnar ógurlegu. Þarf nú að rifja það einhvern daginn upp hér á blogginu.  Hann sagði bara að ég væri óheppin kona og það væri ekkert hægt að gera en hugsanlega gæti ég verið með ofnæmi fyrir munnvatni flugna, oojj hvað er að þessum dýrum. Mín er náttl búin að prófa allt til að forðast fokking bit en það virkar ekkert. 

Eins gott að mar klikki ekki á sjúkratryggingunni miðað við mínar ófarir erlendis

Litla frænka dafnar vel, hún er án efa það fallegast sem ég hef séð á ævinni.  Ég reyni að fara sem oftast á meðan þær eru hérna. Notalegt líka að hafa mömmu í bænum í smá stund.  Við mamma tókum góðan mömmurúnt í fyrradag, ótrúlega fínt.  Pabbi er orðin soldið leiður á að bíða eftir afastelpunni sinni, hann er að rifna úr stolti eins og allir aðrir. Foreldrarnir standa sig eins og hetjur´, Ragnar er á fullu reyndar í prófum, en Árný hefur mömmu hjá sér sem betur fer. Þau eru svo dugleg.  Svo verður útskrift hjá Árnýju 20. maí. vúbbí.

Vill einhver segja mér af hverju ég get ekki sett inn myndir beint inn á síðuna, gat það hér áður fyrr. Óþolandi



Kveð að sinni

 

 




» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 11:12:29 / berga8

Já sæta lúsin er komin í heiminn

Sæl nú öll sömul,

Ég er búin að eignast litla frænku ligga ligga lái.  Berglind litla er komin í heiminn.  Ég þarf ekki að hafa meiri áhyggjur af litlu kjólunum mínum fyrst það kom stelpumús. Flott.  Árný og Ragnar stóðu sig eins og hetjur.  Ég fór upp á spítala til þeirra kl 7 í gærmorgunn og nuddaði hana og knúsaði í hríðaköstunum.  Amma Stefa var líka á svæðinu.  Ég hélt að ég myndi verða stressuð og missa mig, og myndi jafnvel ekki þora að ganga í gegnum þetta sjálf eftir að upplifa þetta. En þetta er eitt það fallegasta sem ég hef upplifað. Yndislegt.  Ég skrapp í vinnuna um 10 leytið að redda einhverjum fyrir mig í vinnu þá virtist allt  í góðum gír og stöðugt ástand.  Þegar ég kem til baka er amma horfin og ég náði ekki sambandi við neinn sem var inni hjá Árnýju því allt var farið á fullt.  Þannig að ég beið inn á biðstofu ,,feðra´´ þvílíkt æst og spennt með hnút í maganum vissi ekkert hvernig væri að ganga þarna inni.  Púff púff.  Svo stekkur amma (nýbakaða langamma) inn á biðstofuna og segir mér að koma núna, mér dauðbrá og stökk á eftir henni.  Spenningurinn var gífurlegur því amma sagði mér ekki neitt og ég hélt alveg eins að það væri allt í háalofti þarna inni ennþá og þetta væri ekki að ganga eins og það ætti að gera.  (Mar er alltaf að heyra svo slæmar fæðingasögur, að mar býst alveg við því versta)  Nei viti menn allar áhyggjur óþarfar því þarna voru þau sætu litlu hjónin með fallegsta barn í heimi.  Litlu frænku mína.  Allt gekk vel og allir sprækir og hamingjusamir.  Flottur dagur.  Mamma kom svo í loftköstum klukkutíma eftir fæðingu, ég bjóst svosem alveg við því að hún stykki út á ferð rétt fyrir ofan spítalann og kæmi í fallhlífabúningnum inn á deild því hún var að missa sig í háloftunum á leið í bæinn.  Hún var nú ekki að nenna að þurfa standa í því að þurfa ná í farangurinn og eyða tíma í lendingu á rvk flugvelli.  Hún vissi ekki að þetta væri búið fyrr en hún lenti.  Enn og aftur eru komnir 5 ættliðir í kvennlegg, í gegnum ömmu Stefu og einnig 5 ættliðir í gegnum afa Ninna. 

Frábær dagur.

 

 



Og nú situr Skúli greyið einn heima á Djúpa að borða afmælisköku sem mamma skellti í áður en hún fór í stresskasti. Því hann á afmæli í dag þessi elska, hann var pínu svekktur að litla lufsan, nýjasta lufsan kæmi ekki á deginum hans.  Skúli minn ég mun aldrei  gleyma afmælisdeginum þínum kallinn minn þó að það sé komið nýtt dekurdýr í fjölskylduna.  En nú verðum við að sætta okkur við það að við höfum færst aðeins aftar á vinsældarlistanum.  En það er allt í lagi því hún er svo sæt og góð litla músin.

 

 



Berglind móðursystir

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 12:58:16 / berga8

Páskahvað..........

  

Tja hvað skal mann segja, ég er heitur bloggari, funheit. En nóg um það, var að horfa á mestu snilldarmynd ever, MÖRGÆSARMYNDINA.   Við tölum oft um hvað sé hægt að leggja mikið á eina manneskju eftir að hafa horft á þessa mynd með tárin í augunum spyr mar sig hvað sé hægt að leggja á eitt lítið krúttað dýr. Þetta er rosalegt. Life is a bitch and then you die, eins og maðurinn sagði.  Ég mæli með að allir horfi á þessa mynd. Það er líka hægt að lesa um keisarmörgæsina hér.   

 

 

 

 

 

 

Jæja nú styttist í páskafríið ógurlega, við familían förum norður í stemmninguna.  Rosalega langar mig samt líka austur, oohh mar getur ekki gert allt sem manni langar til.  Svo fer litla krílið að fara koma í heiminn, ég hlakka ótrúlega mikið til að knúsa litlu frænku/frænda. Ég er búin að segja við Árnýju að þetta verði stelpa og hún mun heita Berglind fagra. Svo get ég klætt hana í alla litlu sætu kjólana mína, úff krúttað.  Verð samt jafn sátt með strák ég klæði hann bara í kjólana mína samt, nafnið yrði þá Heiðar (millinafnið mitt-Heiður). Þetta er allt útpælt. Hann mun ekki hljóta skaða af að klæðast kjólum því það yrði bara gert fyrstu mánuðina eða árin.  Þið sjáið engar skemmdir á Skúla bróður og hann var í pilsum langt fram eftir aldri (sorry skúli, vona bara að það sé engin hot gella sem þú ert að reyna hönka að lesa þetta), jarðaberjapilsið góða.  Bara góðar minningar, Skúli í ´´jarðaberjapilsinu´´ Árný í ´´hinu´´ pilsinu í sportsokkum að dansa inní stofu heima í Sólberginu.  Bubbi var þá tíður gestur á plötufóninum.  Verð að redda klippum af þessu. Þessu náðu mamma og pabbi life og á myndum. 

 

Talandi um myndir, þó ég sé búin að vera léleg í skrifum þá þýðir það ekki að ég sé ekki dauð úr öllum æðum.  Mín er búin að setja inn slatta af myndum.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 10:33:01 / berga8

Langt um liðið

Asskoti langt síðan síðast, ég er hins vegar búin að vera aðeins duglegri að  setja inn myndir.  Helsta í fréttum er að það búið að bætast við í familíuna okkar, það er hún Ísabella drotting.  Langamma Græna gat ekki haft hana lengur, það þurfti að leggja hana inn og engin gat hugsað um Bellu litlu á meðan.  Afi Ninni hringdi í mig í jan þá var amma ennþá inn á spítalanum og spurði mig hvort ég vildi taka hana annars yrði hún látin hverfa.  Ég og amma Græna vorum búnar að tala um það fyrir nokkrum árum að ef e-h kæmi fyrir ömmu þá myndi ég taka Ísabellu.  Þannig að hún kom með Árnýju systur í flugi nokkrum dögum seinna. Hún var orðin illa reytt og tætt eftir að lufsast ein í sveitinni og engin að greiða henni.  Þannig að við systur fórum til kattasnyrtis og litla píslin var snoðuð.  Já snoðuð inn að skinni, þetta voru mikil átök.  Skott og háls skilin eftir þannig að hún var eins og ljónynja.  Mesta krúttmunda sem ég veit um.  Mun setja inn myndir, before and after snoð.

 

Ef einhver er á lausu í lífinu og ekkert plan í gangi og til í hvað sem er, þá er ég að leita mér af ferðafélaga til að koma með mér bara e-h í maí.  Svona hálfgert bakpokastemmning.   Mig langar að fara til S-Ameríku eða til Asíu. Ég er að brjálast mig langar svo núna strax. 

 

 

 

 

                                                                                               

 

                                                                                               



 



 



 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3