Bergulufsan

sæl nú

19.05.2006 08:47:30 / berga8

Die Barbie

Hver man ekki eftir Barbie-laginu ógurlega með aqua sem var gjörsamlega búið að gera mann brjálaðann.  Árný systir spilaði þetta grimmt þegar hún var lítil og allt í botni og á repeat dögum saman  Púff........... Og enn heyrir mar þetta lag hljóma reglulega, hjá ungum stúlkukindum sem eru að uppgötva þetta líka skemmtilega lag 8|.  Anyways, hér er lagið með íslenskri þýðingu. Það er ágætt að söngla með í hausnum á sér, til að fá réttu stemmninguna.

Ég er barbie mær,

frá toppi oní tær,

kann að bussla,

ég er algjör drusla,

hárið mitt er ljóst,

með sílikon í brjóst,

engar brækur,

kond'og vertu sprækur,

heyrðu feiti kodd'í teiti,

ahahah yeee,

nú er fjör á næsta leiti

úah ú, úah ú!!!

ÉG er sæt,

ÉG er mjó,

ÉG er voðalega sljó,

ÉG á bíl,

ÉG á stíl,

ÉG ER MODEL!!!!!!!!!!!!!

Mér finnst alltaf gaman að spá í hlutföllin á lufsunni, ógeðs langar tannstönglalappir og pínulítill búkur með risabrjóst og innfelldan maga.  Við skulum ekki gleyma að kona með þessi hlutföll væri getulaus, hún færi ekki á blæðingar, hún væri að kurlast upp af næringarskorti þannig að hárið á henni gæti ekki verið svona þykkt og fallegt.  Hún ætti í raun að vera með kryppu á bakinu vegna álags á hrygginn að bera þessi ósköp framan á sér.  Fyrir utan allt þá getur hún sett síldartunnu á milli lappanna og samt náð hælunum saman.  Fötin sem fylgja henni eru svo þröng að mar var heillengi að koma henni í þau og mamma setti alltaf hveiti í stígvélin hennar svo það væri hægt að klæða hana í þau.  Uss suss

Hey ein pæling í viðbót, við stelpurnar erum stundum að pæla í því af hverju við séum alltaf að vaxa og raka hina ýmsu staði og þá aðallega George of the jungle svæðið.  Því ekki erum við að gera það fyrir strákanna þeim virðist vera þokkalega sama um þetta allt saman.  Ég held að það sé innprentað í okkur barbie-kynslóðina miklu meira en við teljum.  Af hverju er Barbie með risa brjóst (þar af leiðandi löngu komin yfir kynþroskaskeiðið ) en ekki pjölluhár, eða undirhandahár osfrv. 

Við skulum hafa það á hreinu að ég er ekki bitur vegna óæskilegrar fitu eða líkamshára hér og þar á mínum líkama.

 

Áhugaverðar síður

 

 

 

 

Kveðja Berga Thai

http://www.antibarbie.com/antiabout.html

 http://members.tripod.com/~toods/antibarbie.html

Helga Gulla skrifaði
Usss hvað er mikið til í þessu hjá þér!
Regína skrifaði
HALLELÚJA! Hey sæta, hlakka til að sjá þitt mjóa mitti, stóru brjóst og brúsklausa handakrika á morgun;) Vil samt láta þig vita að það er spáð rigningu eitthvað frameftir vikunni þannig að það gæti verið gott að hafa regnhlíf með í fórum sínum. En rigningin mun ekki minnka gleðina hjá okkur! Svo er aldrei að vita að þetta verði bara örfáir dropar.
Erla Gulla. skrifaði
hehehehe.. þú ert yndisleg.. hehehehe... þvílíku pælingarnar :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.